Upplýsingar •  Smáhýsin •  Draumurinn •  Sagan •  Myndir • 
 

  Hafist var handa við uppbyggingu ferðamannaaðstöðunnar í Þakgili vorið 2001 og opnað tjaldsvæði á miðju sumri 2002.

  Hluti af veginum inní Þakgil var þjóðvegur 1 til ársins 1955. Þá tók brúnna af yfir Múlakvísl í hlaupi frá Kötlu og vegurinn var færður neðar á Mýrdalssand nokkru ofar en hann er nú. Á leiðinni í Þakgil er Stórihellir sunnan við Lambaskörð, c.a. 6 km frá þjóðveginum, þar vöru haldnir dansleikir í gamla daga. Byggð var brú yfir Yllagil 1931-1933 aflöggð 2002 og sett ræsi í staðin.

  Bændur í Mýrdal hafa rekið fé sitt á afréttinn í margar aldir og eru djúpar kindagötur víða á afréttinum sem nýtast að hluta til sem göngustígar. Í Miðfellshelli í Þakgili hafa smalar rist fangamörk sín og ártöl á hellisveggina. Hellirinn var notaður sem gangnamannakofi til ársins 1918. Þá eftir kötlugosið var flutt í Brík, skúta fremst í Þakgili, og verið þar eitt haust. Síðan var hlaðinn kofi í Ausubólshólum vestan við Þakgil. Kofinn var notaður í c.a. 50 ár. Við tóftina eru 3 aflraunasteinar sem nefndir eru amlóði, hálfsterkur og fullsterkur. Núverandi gangnamannakofi er gamalt skólahús flutt frá Deildará í Mýrdal.

 
Þakgil • Sigtúni 6 • 870 Vík • Ísland  |  Sími: 893-4889 • Símbréf: 487-1555 • tölvupóstur:bjarnijon@thakgil.is